Um okkur

Sýningakerfi hefur frá 1985 veitt fjölbreytta þjónustu í tengslum við kynningar og vörusýningar. Má þar einkum nefna fullbúna sýningarbása ásamt merkingum, prentun og öllu öðru sem því sem tilheyrir. Fyrirtækið hefur séð um uppsetningu á sýningakerfum á flestum þeim vörusýningum, ráðstefnum og þingum sem haldin hafa verið síðustu ár.

Sýningakerfi ehf er aðili að alþjóðlegum samtökum, OSPI (Octanorm Service Partner International) en í gegnum þau er hægt að útvega sýningarbása hvar í heimi sem er.

Við leigjum húsgögn fyrir vörukynningar í stórmörkuðum og verslunum og sjáum um hvers konar prentun á efni, skiltagerð, merkingar á bílum og verslunargluggum.

Hjá okkur er opið frá kl. 8:00 – 17:00 alla virka daga. Nánari upplýsingar og góð ráð eru veitt í síma 551-9977. Einnig máttu gjarnan senda fyrirspurnir í tölvupósti til okkar. Netfangið er: syning@syning.is

Fólkið á bak við þjónustuna!

Okkar ágæta starfsfólk getur hjálpað þér að fullvinna verkið. Við erum með velþjálfað lið sem getur tekist á við vandasöm verkefni. Í gegnum árin höfum við veitt þjónustu við vörusýningar í hinum ýmsu löndum.

Guðni Sigfússon

Framkvæmdarstjóri
897 1577
gudni@syning.is

Anna M. Björnsdóttir

Fjármál
896 1577
syning@syning.is

Birgir Guðnason

Kerfisverk
551 9977
syning@syning.is

Ragnar Ragnarsson

Prentun og skurður
551 9977
syning@syning.is

Birgjar